Jæja þá er maður mættur á klakann eftir geggjaða ferð

.
Við fórum út seinnipartinn þann 17. maí. Ferðin gekk vel út, dáldið þröngt í vélinni en það hafðist. Við vorum komin út rétt fyrir miðnætti. Góð aðstaða er fyrir fatlaða og fólk í hjólastólum út á flugvellinum, nokkrir galvaskir menn sem sjá eingöngu um hjólastólstólafólk tóku á móti okkur og fylgdu alla leið út í bíl, þvílíkt góð þjónusta

Hótelið okkur var bungalows íbúðir og heitir það Paraqe Cristóbal. Við vorum í þriggja herbergja íbúð sem er sérútbúin fyrir fatlaða. Allt gekk að óskum þar til stóllinn klikkaði og hlóð sig ekki. Höfðum við þá samband við þjónustu hótelsins og fengum við flotta þjónustu. Þeir tóku stólinn og lagfærðu hann og Kiddi fékk lánsstól á meðan b týpu og lét sig bara hafa það, það var ekkert annað í boði og skellti í sig nokkrum köldum til að halda sönsum hehe, Stóllinn kom til baka 2 dögum síðar eins og nýr og brosti þá kjellinn hringinn. Við kynntumst æðislegu fólki frá sambýli í Grindavík og vorum við mikið saman.
Einnig kynntumst við fullt af íslendingum sem á hótelinu voru. Erna og Fjóla misstu í búðunum og fékk kallinn að dúsa fyrir utan þær og bíða í tíma og ótíma.
Við vorum dugleg að skoða okkur um í nágrenninu og góðir stígar eru um allt og meðfram ströndinni. Kiddi komst allra leiða sinna og inn á alla staði

Mikið er gert fyrir fatlaða og fjölskyldufólk þarna og öll aðstaða til fyrirmyndir. Góð þjónusta fyrir fatlaða og hægt að leigja allsskonar græjur og þjónusta allan sólarhringinn. Við vorum í hálfu fæði á hótelinu og var maturinn mjög góður. Það var skýjað á köflum og mjög þæginlegur hiti svo náði sólin að rífa sig í gegnum skýin seinnipartinn. Fjóla og Erna skelltu sér í mollið í verslunarferð með íslenskum konum í rútu. Kiddi var í góðu yfirlæti hjá gæslumönnum Grindavíkur á meðan, takk fyrir pössunina kæru vinir.
Ferðin heim gekk mjög vel það var næturflug. Fengum Iron Maiden vélina heim og var hún hálftóm og gat fólk lagt sig á heimleiðinni. Kiddi gat lagt sig í einu 3 sæta á leiðinni heim. Svo þegar heim var komið um fimmleytið um morguninn var enginn rani laus svo það þurfti að hífa hjólastólafólkið niður í lyftu út í rigninguna, ekki alveg málið.
Semsagt frábær ferð í góðra vina hópi og vil ég þakka Ernu og Fjólu fyrir alla aðstoðina og fyrir að umbera kallinn allan þennan tíma. Þið eruð bestar

Kv Kiddi og co
Einnig viljum við koma þakklæti til þeirra sem gerðu okkur kleift að komast í þessa ferð.
Hólshús bættist við sem styrktaraðili í lokin kærar þakkir fyrir stuðninginn


